
Víkingur Heiðar Ólafsson
Afmælisbörn Glatkistunnar eru tvö að þessu sinni:
Jón Ingi Valdimarsson bassaleikari Greifanna frá Húsavík er fimmtíu og tveggja ára gamall í dag. Jón Ingi hefur verið í Greifunum frá upphafi en sveitin gekk fyrst undir Special treatment nafninu.
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari er þrjátíu og þriggja ára en hann þekkja allir. Víkingur nam í Bandaríkjunum og hér heima, lauk meistaranámi í píanóleik 2008 frá Juillard og hefur unnið allan af verðlaunum í listgrein sinni. Hann hefur ennfremur gefið út og leikið inn á plötur, annast tónlistarþáttagerð í sjónvarpi og rekið eigið útgáfufyrirtæki, nýlega kom út plata á vegum Deutsche Grammophone þar sem Víkingur gerir etýðum Philips Glass skil.














































