Elding
(Lag Daníel Ágúst Haraldsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson / texti Daníel Ágúst Haraldsson)
Hvað býr í heimi vindanna?
Vart ró í skjóli tindanna.
Án ljóss sést himinlifandi
örskots elding skellur á.
Er glóð úr lausi lofti skýst,
kalt kol af surtandi hlýst,
örskots elding skellur á.
Grenjandi rigning – þrumuljós.
Er hún kviknar
kjarkur kiknar.
Er hún splúndrast,
steinhljóð sundrast.
Hrifning og skelfing brjótast út.
Fæst fer eins og ætlað er,
fellur margt í orðaher.
Flest fæst upp á yfirborð,
fátt eitt þó í töluð orð.
Til að lýsa leiftri eldingar
Er hún kviknar
kjarkur kiknar.
Er hún splúndrast,
steinhljóð sundrast.
[af plötunni Nýdönsk – Himnasending]














































