Freistingar
(Lag Björn Jörundur Friðbjörnsson / texti Daníel Ágúst Haraldsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson)
Í öndvegi
hefur skipað sér
af sjálfsdáðum
frá örófi
meðan mannkyn svaf
í aldanna rás.
Í álögum
ávaxtatré
forboðin nautn
er afleiðing
af áfergju
hégómagirnd
– nokkrar höfuðsyndir.
Þú stelur öllu – þér er sama
Þú girnist allt – sem aðrir eiga
Þú fjötrar aðra – öðlast frama
Þú spýtir eitri – vilt aðra feiga.
Sama hver þú ert
Sama hvar þú ert
Sama hvað er gert.
Fjöldi freistinga
Fjöldi kræsinga
Fjöldi refsinga
[af plötunni Nýdönsk – Himnasending]














































