Neptúnus (Sjávarguð)
(Lag Jón Ólafsson / texti Daníel Ágúst Haraldsson)
Í votri veröld velkist um,
velkist um
heittemprað hafið,
heimkynnin umvefja þig.
Í nálægð við Neptúnus
nakinn á botninum bý um mig.
Í sjávarþangi sveima um,
sveima um.
Læt hugann leita
landið á – grasgræna jörð.
Yfirgef Neptúnus
nálgast nú yfirborð – mannahjörð.
Syndi með straumnum,
sé að fólkið er eins.
Glitrar á glimmer húðina.
Fylgi með flaumnum,
finn ég kenni mér ekki meins.
Hrærist í hafi mannanna.
[af plötunni Nýdönsk – Hunang]