Afmælisbörn 5. nóvember 2019

Viðar Jónsson

Eitt afmælisbarn í tónlistargeiranum er skráð hjá Glatkistunni á þessum degi:

Viðar Jónsson tónlistarmaður er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Viðar hefur mestmegnis verið viðloðandi pöbbabransann í gegnum tíðina, hann hefur leikið og sungið með fjölda sveita til langs tíma auk þess að starfa eins síns liðs. Meðal sveita sem Viðar starfaði með má nefna Garða og Gosa, Plöntuna, Áhöfnina á Halastjörnunni, Kúrekana, Duo spez og Geisla. Um miðjan áttunda áratuginn sendi hann frá sér lagið Sjóarinn síkáti sem naut nokkurra vinsælda en Viðar hefur jafnframt sent frá sér nokkrar plötur, einn og í samstarfi við aðra.