Afmælisbörn 16. janúar 2021

Guðjón Rudolf

Í dag eru þrjú afmælisbörn úr hópi íslensks tónlistarfólks skráð hjá Glatkistunni:

Arnar Sigurbjörnsson gítarleikari er sjötíu og tveggja ára gamall í dag, hann var einkum áberandi í poppsenunni á áttunda áratug síðustu aldar. Arnar lék með hljómsveitum eins og Brimkló, Mexíkó, Strengjum, Ævintýri, Toxic, Action og Flowers, og söng stundum líka með sveitum sínum. Hann hefur jafnframt leikið inn á fjölda platna.

Guðjón Rudolf Guðmundsson er sextíu og tveggja ára gamall í dag en hann er auvitað þekktastur fyrir lagið um Húfuna. Guðjón Rudolf sem hefur verið búsettur í Danmörku til fjölda ára hefur starfað með fjölda hljómsveita þar og hér heima, Fivebellies, Dularfulla stjarnan, Krauka, Inferno 5, Kíkóte vindmyllurnar og Sköllótta tromman eru meðal þeirra sveita en einnig kallaði hann sig hér áður Guðjón bak við tjöldin. Hann hefur gefið út nokkrar sólóplötur.

Þá er hér að síðustu nefndur sellóleikarinn Gunnar Kvaran en hann er sjötíu og sjö ára gamall á þessum degi. Gunnar nam tónlist hér heima og í Danmörku og þar í landi var hann við kennslu um tíma áður en hann sneri aftur heim, hann hefur haldið fjölda tónleika víða um heim og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín. Mikill fjöldi platna hefur komið út með sellóleik Gunnars, bæði með honum einum og í félagi með öðru tónlistarfólki.

Vissir þú að fyrsta hljómsveit Vilhjálms Vilhjálmssonar hét Busabandið?