Fljótsmenn (1967-69)

Fljótsmenn var ein af allra fyrstu bítlahljómsveitunum sem starfaði á Héraði en sveitin starfaði í um tvö ár.

Fljótsmenn voru stofnaðir sumarið 1967 og fyrst um sinn voru meðlimir hennar fjórir, þeir Andrés Einarsson gítarleikari, Þórarinn Jón Rögnvaldsson bassaleikari og bræðurnir Sigurður Kjerúlf trommuleikari og Hjörtur Kjerúlf gítarleikari. 1968 bættist þriðji bróðirinn í hópinn, Reynir Kjerúlf en hann lék á hljómborð. Þannig skipuð störfuðu Fljótsmenn til ársins 1969.

Fljótsmenn kom saman árið 2008 og kom þá fram opinberlega í tilefni af fjörutíu ára afmæli sveitarinnar.