
Frískamín
Á Fljótsdalshéraði starfaði hljómsveit rétt fyrir síðustu aldamót, skipuð ungmennum, undir nafninu Frískamín.
Meðlimir þessarar sveitar voru þau Þröstur Indriðason [?], Sindri Sigurðsson [?], Aðalsteinn Sigurðarson [?], Rúnar Árdal [?] og Sigríður Sigurðardóttir [?]. Einnig komu stundum fram með sveitinni Margrét Guðgeirsdóttir hljómborðsleikari, Ásgeir Páll Baldursson gítarleikari og Árni Þór Steinarsson gítarleikari.
Frískamín mun hafa hljóðritað nokkur lög á starfstíma sínum en frekari upplýsingar óskast um þessa sveit, s.s. hversu lengi hún starfaði og hver hljóðfæraskipan hennar var.














































