
Samkór Húnaþings
Samkór Húnaþings var settur saman sérstaklega fyrir hátíðarhöld í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974 en slíkar hátíðir voru haldnar um allt land afmælisárið, líklegt er að kórinn hafi verið settur á stofn ári fyrr og hafið æfingar haustið á undan.
Það var Sigríður G. Schiöth sem var stjórnandi Samkórs Húnaþings og hafði veg og vanda af starfinu en hún æfði kórinn fyrir hátíðina sem fór fram í byrjun júlí 1974, kórmeðlimir voru um níutíu alls og úr nánast öllum kirkjukórum Húnaþings, kórarnir æfðu ýmist einir eða allir saman undir handleiðslu Sigríðar.