
Egill Friðleifsson
Í dag eru þrjú tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Tónlistarkonan Rakel Mjöll Leifsdóttir er þrjátíu og tveggja ára gömul á þessum degi. Rakel Mjöll vakti fyrst athygli í söngkeppni Samfés og hefur m.a.s. keppt í undankeppni Eurovision en hefur fyrst og fremst verið þekkt sem söngkona s.s. hljómsveita eins og Útidúr og Dream wife sem hefur verið að gera það gott í Bretlandi, en hefur einnig starfað með Sykri og Halleluwah.
Egill Rúnar Friðleifsson fyrrverandi kórstjórnandi er áttatíu og eins árs gamall í dag. Egill sem er þekktastur fyrir að vera stofnandi og kórstjóri Kórs Öldutúnsskóla í Hafnarfirði stjórnaði þeim kór í fjörutíu ár en undir hans stjórn sendi kórinn frá sér nokkrar plötur auk þess að koma við sögu á nokkrum í viðbót. Þá starfaði Egill við dagskrárgerð í útvarpi og ritaði um tónlist í dagblöð um árabil.
Og á þessum degi hefði Szymon Kuran fiðluleikari og tónskáld átt afmæli, hann var Pólverji sem flutti til Íslands og starfaði hér til dauðadags 2005 en hann var fæddur 1955. Szymon starfrækti nokkrar sveitir hér á landi s.s. Kuran Swing, Kuran kompaní, Súld og Pól-ís, hann gaf ennfremur út og lék inn á fjölmargar plötur hérlendis.
Vissir þú að Birgir Örn Steinarsson (Biggi í Maus) gaf út jólalag árið 2004 og gaf ágóðann af því til Mæðrastyrksnefndar?