
Sigurjón Axelsson
Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Franz Gunnarsson gítarleikari Ensíma er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Franz hefur auk þess að vera einn af meðlimum Ensíma, verið í þekktum sveitum eins og Dr. Spock, Quicksand Jesus og Moody company en einnig minna þekktum á sínum yngri árum s.s. Dagfinni dýralækni og Carpe diem þegar hann var að stíga sín fyrstu spor í tónlistinni. Franz poppar reglulega upp á plötum annarra listamanna en hefur undanfarin ár komið fram undir nafninu Paunkholm.
Gítarleikarinn Sigurjón Axelsson (1973-91) átti þennan afmælisdag einnig en hann lést aðeins átján ára gamall. Sigurjón þótti afar efnilegur tónlistarmaður og starfaði með ýmsum hljómsveitum á sinni stuttu ævi, til að mynda með Flintstones og Titanic auk þess sem hann var í fyrstu útgáfu hljómsveitarinnar Lipstick lovers. Þá starfaði hann jafnframt sem dagskrárgerðarmaður á útvarpsstöðinni Rót undir nafninu Sjonny Flintstón.
Þá átti (Jón) Magnús Pétursson píanóleikari (1930-83) afmæli á þessum degi. Magnús var fjölhæfur tónlistarmaður, samdi lög og texta, útsetti, stjórnaði kórum, kenndi tónlist auk þess að leika á píanó en hann starfaði með mörgum hljómsveitum á ferli sínum og lék inn á mikinn fjölda hljómplatna. Hann var þó e.t.v. þekktastur sem píanóleikarinn í Morgunleikfimi Valdimars og Magnúsar í Ríkisútvarpinu.
Vissir þú að hljómsveitin Skítamórall komst í úrslit Músíktilrauna 1992?