Afmælisbörn 1. október 2022

Guðjón Ingi Sigurðsson

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar þennan fyrsta dag október mánaðar:

Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari og tónmenntakennari er fjörutíu og sex ára á þessum degi. Þráinn hefur komið víða við í fjölbreytileika tónlistarinnar síðan hann lék með unglingahljómsveitinni Pain en þar má nefna sveitir eins og Sága, Klamidía X, Blóð, Innvortis, Kalk, Moonboot, Sikk og Skálmöld sem er auðvitað með þekktustu sveitum landsins en hann hefur einnig leikið á plötum Baggalúts hópsins svo annars konar dæmi séu tekin.

Rósa Guðrún Sveinsdóttir tónlistarkona frá Akranesi er fjörutíu og tveggja ára gömul í dag. Rósa er afar fjölhæf, syngur, semur lög og texta, stjórnar lúðrasveit, leikur á fjölda hljóðfæra og starfar sem tónmenntakennari, hún hefur sent frá sér sólóefni og starfað með hljómsveitum eins og Ritvélum framtíðarinnar, 13 tunglum, Vítamín og Robert the roomate auk þess að hafa komið við sögu á fjölda platna þekktra tónlistarmanna og hljómsveita.

Og að lokum er hér nefndur trommuleikarinn Guðjón Ingi Sigurðsson en hann lést fyrr á þessu ári. Guðjón Ingi sem var fæddur þennan dag árið 1936, lék á árum áður með hljómsveitum á borð við Orion, Hljómsveit Guðjóns Pálssonar, Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar, Hljómsveit Gunnars Ormslev, Hljómsveit Jóns Páls Bjarnasonar, Tríó Kristjáns Magnússonar og Icelandic All star.

Vissir þú að fyrsta lagið sem Rúnar Júl söng opinberlega var It‘s alright mama sem Elvis Presley hafði gert vinsælt?