
Gunnar Þórðarson
Fjórir tónlistarmenn eiga afmæli í dag, þeir eru eftirfarandi:
Gunnar Þórðarson gítarleikari og lagahöfundur er sjötíu og átta ára gamall í dag. Gunnar þarf auðvitað alls ekki að kynna, hann fæddist á Hólmavík, fluttist ungur til Keflavíkur, varð fyrst landsfrægur sem gítarleikari, söngvari og aðal lagahöfundur bítlasveitarinnar Hljóma en síðar komu aðrar sveitir eins og Thor‘s hammer, Lónlí blú bojs og Lummurnar. Frá því um miðjan áttunda áratug síðustu aldar hefur hann gefið út nokkrar sólóplötur en einnig unnið með öðrum listamönnum t.d. að vísnaplötunum margfrægu og Reykjavíkur plötunum. Allt of langt mál yrði að telja upp öll tónlistarafrek Gunnars en eftir hann liggur ógrynni af tónlist í formi popplaga, kvikmyndatónlistar, óperu, sálumessu og leikhústónlistar, auk þess sem út hafa komið nótnabækur og ævisaga hans svo fáein dæmi séu nefnd.
Steingrímur Guðmundsson trommuleikari á einnig afmæli í dag en hann er sextíu og fimm ára gamall. Steingrímur sem er af trommuleikaraættum hefur leikið með ýmsum listamönnum bæði á sviði og á plötum en hann hefur lengst um verið trommuleikari hljómsveita eins og Milljónamæringunum, Súld, Pnin, Varsjárbandalaginu, Steintryggi o.fl.
Ólöf (Helga) Arnalds tónlistarkona er þriðja afmælisbarn dagsins, hún er fædd 1980 og á því fjörutíu og þriggja ára afmæli í dag. Ólöf starfaði með ýmsum hljómsveitum á yngri árum eins og Endemi, Mósaík, Múm, Stórsveit Nix Noltes og fleirum, auk þess að vinna með Skúla Sverrissyni áður en hún hóf sólóferil en hún hefur gefið út nokkrar breiðskífur.
Og að síðustu er hér svo nefnd Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikari en hún fagnar í dag sextugs afmæli sem er auðvitað stórafmæli. Sigrún nam fiðluleik hér heima og í Bandaríkjunum en hefur hér heima leikið á ótal tónleikum m.a. sem einleikari en einnig með Caput, Kammermúsíkklúbbnum, Kammersveit Reykjavíkur, Kammerklúbbnum Ottó, Camerarctia Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveit Íslensku óperunnar svo nokkur nöfn séu nefnd. Þá hefur hún jafnframt leikið inn á fjölda platna í gegnum tíðina.
Vissir þú að Megas og dr. Gunni eiga það sameiginlegt að vera fyrrverandi bankastarfsmenn?