Afmælisbörn 5. janúar 2023

Kristín Anna Valtýsdóttir

Í dag eru fimm tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Davíð Þór Jónsson er fimmtíu og átta ára gamall í dag, hann er fremur þekktur sem skemmtikraftur, fjölmiðlamaður, guðfræðingur og nú prestur, annar Radíus bræðra og sitthvað fleira en að vera tónlistarmaður. Hann var þó söngvari hljómsveitarinnar Faríseanna sem gaf út plötu 1996, samdi þar bæði lög og texta, en hefur aukinheldur samið fjölmarga söngtexta fyrir leikhús og aðra tónlistarmenn.

Þá á einnig Ægir Sindri Bjarnason trommuleikari afmæli en hann er þrítugur á þessum degi og fagnar því stórafmæli. Hann hefur lamið trommusett með fjölda hljómsveita og meðal þeirra eru hér nefndar Dead herring, World narcosis, Logn, Klikk og Electric playground.

Gyða Valtýsdóttir sellóleikari, tónskáld og margt annað er þriðja afmælisbarn dagsins en hún er fjörutíu og eins árs gömul í dag. Gyða sem vann nýlega til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs vakti fyrst athygli með hljómsveitinni múm og hefur einnig starfað með kammerhópnum Krumma, en hún hefur jafnframt leikið á plötum fjölda annarra tónlistarmanna og hljómsveita s.s. Megasi, Slowblow, Úlfi Hanssyni og Kimono. Gyða hefur aukinheldur sent frá sér sólóplötur og starfað við kvikmyndatónlist.

Kristín Anna Valtýsdóttir píanóleikari, söngkona og tónskáld, tvíburasystir Gyðu á auðvitað einnig þennan afmælisdag og er því líka fjörutíu og eins árs afmæli. Hún starfaði einnig með hljómsveitinni múm og hefur starfað undir nafninu Kría Brekkan og gefið út nokkrar plötur undir því aukasjálfi, þá hefur hún starfað með Stórsveit Nix Noltes og komið við sögu á plötum Slowblow, Skúla Sverrissonar og fjölda annarra listamanna auk þess að hafa gefið út sólóefni.

Að lokum er hér nefndur Hilmar Arnar Hilmarsson gítarleikari sem einnig átti þennan afmælisdag en hann lést árið 1986. Hilmar Arnar (fæddur 1946) lék með nokkrum bæði þekktum og óþekktum hljómsveitum hér fyrir margt löngu og hér má nefna sveitir eins og Sóló, Sextett Jóns Sigurðsson og J.J. Quintet.

Vissir þú að söngvarinn Rúnar Gunnarsson var um nokkurt skeið bassaleikari Sextetts Ólafs Gauks?