Substandard suffix (1997)

Hljómsveit sem bar heitið Substandard suffix mun hafa starfað undir lok síðustu aldar og verið undanfari hljómsveitarinnar Sofandi sem stofnuð var sumarið 1997.

Upplýsingar eru afar takmarkaðar um Substandard suffix, fyrir liggur að Agnar Diego var einn meðlimur hennar en ekki er vitað hverjir þeirra sem stofnuðu Sofandi (Markús Bjarnason söngvari og bassaleikari, Kristján Freyr Einarsson trommuleikari og Bjarni Þórisson gítarleikari) voru í sveitinni eða hvort aðrir komu þar við sögu.