Afmælisbörn 13. febrúar 2023

Aðalsteinn Ísfjörð

Í dag er eitt afmælisbarn á lista Glatkistunnar:

Aðalsteinn Ísfjörð (Sigurpálsson) harmonikkuleikari og múrarameistari átti afmæli þennan dag en hann lést á síðasta ári. Aðalsteinn sem var Húsvíkingur kom víða við á sínum ferli sem harmonikkuleikari, gaf út sólóplötur og í samvinnu við aðra, og lék með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þar má nefna sveitir eins og Hljómsveit Illuga, Víbra, Húsavíkur-Hauka og GH kvartett en hann kenndi enn fremur á harmonikku við Tónlistarskólann á Húsavík og var einn af stofnendum Harmonikkufélags Þingeyinga.

Vissir þú að Hafliði Hallgrímsson hlaut tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1986?