Innan Ungmennafélags Reykjavíkur (UMFR) var söngfélag drengja starfandi veturinn 1909 til 10 en UMFR hafði veturinn á undan starfrækt sameiginlegan söngflokk í samstarfi við ungmennafélagið Iðunni, sem gekk undir nafninu Söngfélag ungmennafélagsins Iðunnar og Ungmennafélags Reykjavíkur. Stúlkurnar í Iðunni (sem var kvennaungmennafélag) virðast ekki hafa haft áhug á áframhaldandi samstarfi og því stofnaði UMFR sér söngfélag.
Ekki finnast neinar frekari upplýsingar um þetta söngfélag, um söngstjóra þess eða nánari starfsemi.