Hjá Geira (1995-96)

Hjá Geira

Hjá Geira var söngsextett sem starfaði innan Samkórs Norðurhéraðs veturinn 1995-96, líklega undir stjórn Julian Hewlett.

Ekki liggur fyrir hvaðan nafn sextettsins kemur en hópinn skipuðu þau Rosemary Hewlett, Ásdís Snjólfsdóttir, Julian Hewlett, Egill Pétursson, Anna Alexandersdóttir og Guðbjörg Björnsdóttir. Sextettinn kom fram á nokkrum tónleikum þar sem samkórinn söng, einkum þó um vorið m.a. á Borgarfirði eystra og víðar.