Barnakór Vesturbæjarskóla (1976-2011)

Kór starfaði í áratugi við Vesturbæjarskóla, ýmist nefndur Barnakór, Skólakór eða bara Kór Vesturbæjarskóla.

Kórinn var líklega formlega stofnaður veturinn 1976-77 en þá hafði verið hefð um nokkurt skeið að skólastjórinn Hans Jörgensson kenndi söng við skólann, þar voru einkum sungin skátalög og svo jólasöngvar fyrir jólin auk þess sem börnin lærðu að syngja þjóðsönginn. Þennan vetur var Björn Þórarinsson (Mánar, Kaktus o.fl.) hins vegar ráðinn söngkennari við skólann, hann prófaði raddir barnanna og myndaði kórinn sem átti eftir að starfa um árabil. Kórinn æfði og söng lög úr ýmsum áttum og hér má nefna lög eins og Einu sinni var e. Svavar Benediktsson við texta Kristjáns frá Djúpalæk og svo þekkta poppslagara eins og Bítlalagið Penny lane með íslenskum texta (Aurabraut) og Stjúpi sem Brimkló gerði vinsælt um svipað leyti. Undir stjórn Björns söng kórinn aðallega innan skólans s.s. á jólaskemmtunum og við önnur tækifæri en mun einnig hafa sungið á skemmtun í Austurbæjarskóla ásamt kór þess skóla.

Haustið 1977 tók Ragnhildur Gísladóttir við kórstjórn og söngkennslu við skólann en hún var þá orðin þekkt söngkona í Lummunum. Hún stjórnaði kórnum næstu árin og undir hennar stjórn varð kórinn reyndar svo frægur að syngja á plötunni Glámur og Skrámur í sjöunda himni (1979) en Ragnhildur samdi einmitt tónlistina á þeirri plötu. Þess má geta að söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson var meðlimur kórsins á þessum árum.

Á árunum milli 1980 og 90 er engar upplýsingar að finna um Barnakór Vesturbæjarskóla og því allt eins líklegt að hann hafi ekki verið starfandi.

Árið 1990 var Vigdís Esradóttir stjórnandi kórsins, hversu lengi hún stjórnaði honum er ekki ljóst en 1994 var Sesselja Kristjánsdóttir við stjórnvölinn, þá kom til sögunnar Kristín Valsdóttir en einnig voru Hulda Guðrún Geirsdóttir og Svava Þórðardóttir meðal stjórnenda til aldamóta.

Á árunum 2000 til 2006 er ekki heldur neinar heimildir að finna um Barnakór Vesturbæjarskóla en Nanna Hlíf Ingvadóttir var stjórnandi kórsins 2007 til 2009, þá tók Hilmar Örn Agnarsson við og síðan Sigríður Soffía Hafliðadóttir. Engar upplýsingar er hins vegar að finna um kórinn eftir 2011 og því eru allar líkur á að sögu hans ljúki það ár. Allar frekari upplýsingar um það eru þó vel þegnar.