Cazbol (1991-93)

Pönksveitin Cazbol mun hafa verið starfandi í úthverfum höfuðborgarinnar en sveitin kom fram á nokkrum tónleikum sumarið 1993. Um haustið átti sveitin sex lög á safnkassettu sem kom út á vegum Gallery Krunk haustið 1991 svo sveitin hefur augljóslega starfandi þá.

Takmarkaðar upplýsingar er að finna um meðlimi Cazbol en á hulstri safnkassettunnar eru þeir sagðir vera Magnús Logi Kristinsson söngvari, Heimir Björgúlfsson kontrabassaleikari, Helgi Þórsson banjóleikari og Ingirafn Steinarsson drumbuleikari, framangreind hljóðfæraskipan er þó varla marktæk að mati Glatkistunnar.

Efni á plötum