Ég stend á skýi
(Lag / texti: Síðan skein sól / Helgi Björnsson)
Einn morgun vakna ég snemma.
Ég anda að mér vorinu.
Ég horfi á flauelsmjúka skugga
sem fagna sólarkomunni.
Viðlag
Ég stend á skýi
í algleymi.
Ég stend á skýi
í alheimi.
Og ég mun opna mitt hjarta
og baða mig í dögginni,
og rísa upp sem nýr maður.
Ó, ég hef fundið sjálfan mig.
Viðlag
[af plötunni Síðan skein sól – Ég stend á skýi]














































