
Gröm
Hljómsveitin Gröm var meðal keppenda í Músíktilraunum Tónabæjar vorið 1994 en sveitin komst þó ekki í úrslit keppninnar, hún hafði verið stofnuð árið á undan.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Grímur Hákonarson söngvari og bassaleikari, Finnur Pálmi Magnússon trommuleikari Einar Friðjónsson gítarleikari og Hafdís Bjarnadóttir gítarleikari.
Gröm starfaði áfram eftir Músíktilraunir, spilaði heilmikið á tónleikum á höfuðborgarsvæðinu um sumarið og haustið og lifði líklega fram á nýtt ár, 1995.
1997 lék sveit með þessu nafni á tónleikum innan Menntaskólans við Hamrahlíð en ekki liggur fyrir hvort um sömu sveit var að ræða.














































