Sunnudagsmorgunn
(Lag / texti: Bjartmar Guðlaugsson)
Sunnudagsmorgunn og pabbi minn liggur í rúminu,
rauðeygður, rámur og risið á honum er lágt.
Mamma er frammi, skuggaleg er hún í húminu
það skilja svo fáir í heiminum hvað hún á bágt.
viðlag
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt.
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt.
Sunnudagsmorgunn og pabbi minn rétt heldur rænunni,
starir í tómið og tortímir líter af kók.
Hann röflar um eggið sem reynir að leiðbeina hænunni,
hann er í ranghverfum sokkum og líka í öfugri brók.
Viðlag
Sóló
Viðlag
Sunnudagsmorgunn og hryggurinn þiðnar á borðinu,
bragðið af honum gleður víst engan í dag.
Já, rétt væri að takaa panodilparið á orðinu
og hlaupa til ömmu og kippa þar hungrinu í lag.
Viðlag
[af plötunni Bjartmar Guðlaugsson – Í fylgd með fullorðnum]














































