Flytjandi sem gekk undir nafninu Útlagar átti lag á safnplötunni Lagasafnið 5 árið 1995.
Þar var Skúli Gautason söngvari, Guðrún Sigurðardóttir söng bakraddir, Dan Cassidy lék á fiðlur og Sigurður Kristinsson annaðist annan hljóðfæraleik, lék á trommur, gítar og bassa auk þess að syngja bakraddir.
Að öllum líkindum var hér ekki um starfandi hljómsveit að ræða en upplýsingar þ.a.l. eru vel þegnar.














































