
Sverrir Stormsker
Eitt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar í dag:
Sverrir Ólafson (Sverrir Stormsker) er fimmtíu og tveggja ára gamall. Sverrir hefur í gegnum tíðina gefið út um tuttugur plötur og ljóðabækur en frægðarsól hans reis hvað hæst fyrir 1990, þá átti hann hvern stórsmellinn á fætur öðrum s.s. Horfðu á björtu hliðarnar, Þórður, Við erum við, Hildur, Búum til betri börn og Sókrates en síðast nefnda lagið var framlag Íslands til Eurovision keppninnar 1988, það lag söng hann ásamt Stefáni Hilmarssyni en það hefur verið eitt aðal einkenni Sverris að fá aðra söngvara með sér. Sverrir hefur alltaf verið umdeildur, einkum fyrir oft á tíðum klámfengna nálgun í textum sínum og þá hefur hann gengið undir nafninu Serðir monster. Lítið hefur farið fyrir honum hin síðari ár.