Afmælisbörn 21. september 2015

Rúnar Þór Pétursson

Rúnar Þór Pétursson

Atli Heimir Sveinsson tónskáld er sjötíu og sjö ára gamall í dag. Atli Heimir nam píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og stundaði síðan tónfræði- og tónsmíðanám í Þýskalandi á árunum í kringum 1960. Hann kom heim að loknu námi og kenndi m.a. við Tónlistarskólann í Reykjavík og starfaði við Ríkisútvarpið. Meðal verka sem hann hefur samið eru óperan Silkitromman, kórsvítan Haustmyndir, tónverkið Tíminn og vatnið og svo fjöldinn allur af sönglögum sem margir þekkja. Atli Heimir hefur einnig sinnt ýmsum félagsstörfum í þágu tónlistarinnar.

Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari er fimmtug í dag. Áshildur hefur komið víða við í tónlist sinni, verið í aukahlutverkum á plötum annarra listamanna en einnig gefið sjálf út nokkrar sólóplötur, m.a. í samstarfi við annað afmælisbarn dagsins, Atla Heimi, og einnig Selmu Guðmundsdóttur, svo fáein dæmi séu tekin.

Þriðja afmælisbarnið í dag er Rúnar Þór Pétursson en hann er sextíu og tveggja ára gamall. Rúnar Þór á að baki langan sólóferil sem spannar vel á annan tug sólóplatna en hann hefur líka starfað með mörgum hljómsveitum síðan hljómsveitaferill hans hófst á Ísafirði með Blackbird en í kjölfarið hafa komið sveitir eins og Jana, Xplendid, Fjötrar, 3. Hæðin, GRM og nú síðast Klettar.