Afmælisbörn 31. desember 2016

Gísli Þór Gunnarsson G.G. Gunn

G.G. Gunn

Eitt afmælisbarn kemur við sögu á þessum síðasta degi ársins:

Gísli Þór Gunnarsson trúbador (G.G. Gunn) er fimmtíu og átta ára gamall í dag, Gísli er ef til vill ekki meðal þekktustu tónlistarmanna Íslands en eftir hann liggja þó þrjár plötur. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur lítið sinnt tónlistinni síðustu tvo áratugi.