Afmælisbörn 1. febrúar 2017

olafur-stephensen

Ólafur Stephensen

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Tage Ammendrup (1927-95) átti afmæli á þessum degi en hann var mikilvirkur plötuútgefandi og kom að tónlist með ýmsum hætti. Hann rak tvær hljómplötuútgáfur, Íslenzka tóna og Stjörnuhljómplötur og komu eitthvað á fjórða hundrað platna út undir merkjum þeirra. Hann gaf ennfremur út tvö tímarit um tónlist, Jazz og Musicu, flutti inn hljómplötur og tónlistarmenn, rak plötu- og hljóðfæraverslun auk þess að gefa út nótur og kennslubækur í hljóðfæraleik. Hann starfaði lengi hjá Ríkissjónvarpinu sem útsendingastjóri.

Einnig hefði djasspíanistinn Ólafur Stephensen átt afmæli á þessum degi en hann lést á síðasta ári. Ólafur (fæddur 1936) lék með fjöldanum öllum af hljómsveitum af ýmsum toga allt frá barnsaldri, þeirra á meðal má nefna SOS tríóið, Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar, Leiktríóið og Hljómsveit Jóns Páls Bjarnasonar en auk þess gaf hann bæði út sólóplötu og nokkrar plötur með djasssveit sinni, Tríói Ólafs Stephensen.