Öskrið
(Lag / texti: Guðmundur Jónsson)
Eldingar þjóta um himinhvolfið.
Þrumurnar dynja í eyrum mér og regnið lemur,
regnið lemur andlitið.
Brostinn streng finn ég í hjarta mínu.
Örvænting hleðst upp í huga mér, ég gæti hlaupið,
gæti hlaupið í burt frá þér.
viðlag
Ég öskra á nóttina, ég öskra á þögnina,
ég öskra á allt það illa sem er til.
Vonleysi í gegnum tímann hefur þjakað mig
og kaldur sársaukinn sem dregur úr mér,
dregur úr mér allan mátt.
Minningar, í gegnum hugann fljúga ósigrar
ævina endalaust, ég verð að berjast,
verð að berjast þér við hlið.
Eld og ís finn ég í æðum renna.
Samviskan bergmálar fjöllum í, já nú skal sverfa,
nú skal sverfa grimmt til stáls.
viðlag
[á plötunni Sálin hans Jóns míns – Hvar er draumurinn?]














































