
Jón Bjarni Pétursson
Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar.
Fyrst skal nefna Jón Bjarna Pétursson gítarleikara hljómsveitarinnar Diktu en hann kemur m.a. við sögu í hinu þekkta lagi Thank you, sem ómaði um allt land 2009 og 10. Jón Bjarni er þrjátíu og fimm ára gamall í dag.
Einnig á bassaleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín, Guðmundur Óskar Guðmundsson afmæli en hann er þrítugur og á stórafmæli dagsins. Hann var einnig áður í hljómsveitunum Imnesium, Heiðurspiltum, Mekkamoos Tilbury og Svitabandinu svo aðeins fáeinar séu nefndar.














































