
Fantasía Flamenca
Tónlistarhópurinn Fantasía Flamenca verður með tónleika á Café Rosenberg við Klapparstíg fimmtudagskvöldið 11. maí nk. kl. 21:30.
Fantasía Flamenca er hópur tónlistarfólks sem sérhæfir sig í flutningi Flamenco tónlistar sem er spænsk tónlist en hún á rætur sínar að rekja til araba, gyðinga og sígauna á Suður-Spáni.
Hópinn skipa gítarleikararnir Símon H. Ívarsson og Ívar Símonarson, söngkonan Ástrún Friðbjörnsdóttir, bassaleikarinn Hrafnkell Sighvatsson og slagverksleikarinn George L. Claassen.
Aðgangseyrir á tónleikana er 2500 krónur.














































