
Berglind Björk Jónasdóttir
Glatkistan hefur í dag upplýsingar um tvö afmælisbörn tengdar tónlistargeiranum:
Berglind Björk Jónasdóttir söngkona er fimmtíu og níu ára. Hún er ein þriggja Borgardætra en hefur að auki sungið með hljómsveitum eins og Snillingunum og Saga Class. Söng Berglindar er að finna á plötum fjölmargra listamanna s.s. Geirmundar Valtýssonar, Guðrún Gunnarsdóttur, Rúnars Þórs, Ingva Þór Kormákssonar og margra annarra.
Birgir Nilsen Þórsson trymbill Vina vors og blóma og Lands og sona er fjörutíu og fjögurra ára á þessum degi. Auk framangreindra sveita hefur Birgir leikið með sveitum eins og Maat mons, The Multiphones, Sælgætisgerðinni, Galeiðunni, Kántrýsveitinni Klaufum og Bravó auk þess að leika sem session leikari á hinum ýmsu plötum. Hann hefur einnig sent frá sér sólóplötu.