
Salka Sól Eyfeld
Í dag er eitt afmælisbarn á lista Glatkistunnar:
Söngkonan Salka Sól Eyfeld (Hjálmarsdóttir) er þrítug á þessum annars ágæta degi og á því sannkallað stórafmæli. Sölku Sól þekkja flestir en hún er eins og kunnugt er önnur söngkvenna Amabadama og ein Reykjavíkurdætra og Tazmaníu-liða. Salka Sól var einnig í hljómsveitunum Skonsunum og Útidúr og hefur í þeim sveitum leikið á hin ýmsustu hljóðfæri, hún hefur ennfremur starfað við leikhústónlist og dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi.














































