
Bounce brothers
Hiphop-sveitin Bounce brothers var ein af fyrstu sveitum sinnar tegundar hér á landi en hún starfaði í Árbænum 1997 og 98.
Ekki liggur fyrir hvort um var að ræða dúett eða tríó en þeir Kristinn Helgi Sævarsson (þekktur einnig sem Diddi Fel.) og Benedikt Freyr Jónsson (B-Ruff / Ben B) voru að minnsta kosti meðlimir sveitarinnar.
Bounce brothers áttu lag á hiphop-safnplötunni For ya mind: Volume 1, sem kom út sumarið 1998 en þeir félagar birtust síðar í Forgotten Lores og víðar.














































