Söngurinn hennar Siggu
(Lag / texti: Bubbi Morthens)
Ég hitti litla dömu,
í París var að hoppa,
sippað getur líka,
fer heima með rifna sokka.
Teiknar fínar myndir,
býður mér að þiggja
eina af sér og eina af mömmu,
skrifar undir: Sigga.
Samt heilla hana fínir kjólar
þegar augun í þá rekur
með maskalit og púðri
andlit sitt hún þekur.
Dansað getur líka
tja, tja, tja og tangó.
Liðug eins og ormur,
vinnur mig í limbó.
Hún á það til að hlæja,
getur líka grátið.
En oftast brýst í gegnum tárin
sæta litla brosið.
Teiknar skrýtnar myndir,
býður mér að þiggja
eina af sér og eina af mömmu,
skrifar undir: Sigga.
[af plötunni Bubbi Morthens – Kona]














































