Um óþarflega fundvísi Ingólfs Arnarsonar
(Lag / texti: Magnús Þór Jónsson [Megas])
Ingólfur hét hann sem endur fyrir löngu
Ísaland fann og nam og bjó sér þar ból
og stjórnmálamennirnir minnast hans í ræðum
og menn geta séð hvar hann stendur uppi á Arnarhól.
En hvað er það sem verndar viðkomu landans?
Vitið þér hvað það er? Mér er það hulið
því á landsmenn og konur herja eldar og ísar
en allra verst er þó bannsett næturkulið.
Því segi ég skál fyrir Fróni og Fjölni og allt það
og firðum snjöllum sem þar hafa skrimt og hrokkið,
við minnumst Ingólfs Arnarsonar í veislum
en óskum þess að skipið hans það hefði sokkið.
[af plötunni Megas – Megas]