
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
Glatkistan hefur upplýsingar um tvö afmælisbörn í dag:
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir tónlistar- og fjöllistakona á stórafmæli en hún er fertug í dag. Hún hefur haslað sér völl sem myndlistamaður m.a. með myndasögum sínum (Lóaboratoríum) en er þekktari í tónlistarbransanum sem söngkona og annar stofnandi hljómsveitarinnar FM Belfast, sem hefur gefið út nokkrar breiðskífur. Þá hefur Lóa Hlín sungið á plötum hljómsveita og tónlistarmanna eins og Hairdoctor og Dr. Gunna, og unnið við hönnun hljómplötuumslaga.
Óskar Norðmann einsöngvari og stórkaupmaður (1902-71) átti afmæli á þessum febrúar degi en hann var einna fyrstur íslenskra einsöngvara til að starfa á erlendri grundu. Hann söng einsöng á plötum með Karlakór KFUM og einnig á nokkrum öðrum 78 snúninga plötum. Söng hans má heyra á safnplötunni Síðasta lag fyrir fréttir (1993). Óskar var fyrsti formaður SÍK (Sambands íslenskra karlakóra) en annars er lítið um hann vitað.