
V.V. kvartett 1958
Vilberg Vilbergsson (Villi Valli) rakari á Ísafirði starfrækti fjölda hljómsveita frá því um miðja síðustu öld og allt fram á annan áratug þessarar aldar, og skipta meðspilarar hans tugum í þeim sveitum. Sveitir Villa Valla hafa verið allt frá tríóum og upp í sjö manna bönd en oftast var um kvartetta að ræða, ekki er um alveg samfleytt hljómsveitastarf að ræða en það verður nánar tilgreint eftir bestu vitund hverju sinni hér að neðan.
Vilberg sem var aðeins um tvítugt, var nýfluttur til Ísafjarðar og var þar farinn að læra hárskeraiðn þegar hann stofnaði fyrstu hljómsveit sína árið 1950. Hann hafði leikið með M.G. tríóinu tveim árum áður og þá hafði þýskur trommuleikari, Erich Hübner leikið með honum, Villi Valli fékk hann til liðs við sig en auk þess voru þeir Finnbjörn Finnbjörnsson píanóleikari og Haukur Sigurðsson trompetleikari í þessari fyrstu útgáfu hljómsveitarinnar sem gekk yfirleitt undir nafninu V.V. kvartett eða Kvartett Villa Valla (Vilbergs Vilbergssonar), sjálfur lék Villi Valli á harmonikku og saxófón.
Þeir félagar útsettu tónlist sína mestmegnis sjálfir og léku bæði gömlu og nýju dansana, framan af var sveitin söngvaralaus og þar var ekki fyrr en löngu síðar sem þeir fengu söngvara, en stöku sinnum komu þó söngvarar og sungu fáein lög á dansleikjum sveitarinnar.
Fyrstu breytingarnar á V.V. kvartett urðu líklega árið 1952, þá var Finnbjörn farinn suður til Reykjavíkur og tók Ólafur Kristjánsson píanó- og víbrafónleikari við hans stöðu, Hörður Þorsteinsson trommu-, básúnu- og altsaxófónleikari var kominn í stað Erichs en auk þess var Bragi Þorsteinsson klarinettuleikari (og bróðir Harðar) í sveitinni með Villa Valla.

V.V. og Barði
1957 kemur líklega ný sveit til sögunnar, þá voru auk Villa Valla í sveitinni þeir Gunnar Hólm Sumarliðason trommuleikari (sem einnig söng eitthvað), Haukur Sigurðsson sem þá lék orðið á kontrabassa, Finnbjörn píanóleikari sem þarna var aftur kominn til sögunnar, og Pétur Pálsson gítarleikari en hann var fyrstur til að leika á það hljóðfæri í sveitinni, Pétur mun einnig eitthvað hafa sungið. Á þessu tímaskeiði er hljómsveitin í fyrsta skipti fimm manna og gekk undir nafninu V.V. kvintett eða Kvintett Villa Valla (Vilbergs Vilbergssonar).
Þetta sama ár, 1957 mun sveitin m.a. hafa leikið í söngvarakeppni sem haldin var á Ísafirði en aðalvígi hennar var auðvitað alltaf heimaslóðir á þessum árum þegar samgöngur voru ekki betri. Það var ekki fyrr en á sjöunda áratugnum sem sveit Villa Valla lék meira að sér kveða í öðrum landshlutum.
Sumarið 1958 hætti þessi sveit Villa Valla og hann stofnaði í beinu framhaldi nýja sveit, Tríó Villa Valla sem var auk hans skipað Gunnari á trommur og Hauki á bassa, vorið eftir bættist Ólafur Kristjánsson píanóleikari aftur í hópinn sem og söngkonan Vélaug Steinsdóttir frá Bolungarvík – sú útgáfa sveitarinnar starfaði um nokkurra mánaða skeið.

V.V. sextett og Barði
Áramótin 1960-61 stofnaði Villi Valli enn aðra sveit, tríó sem átti eftir að stækka og ganga síðar undir nafninu V.V. sextett og Barði, þá sveit skipuðu í upphafi þeir Villi Valli, Magnús Reynir Guðmundsson bassaleikari og Barði Ólafsson söngvari en fljótlega bættust í hópinn Ólafur Kristjánsson píanóleikari, Ólafur Pétursson saxófónleikari og Guðmundur Marinósson trommuleikari, um haustið 1961 hætti Ólafur píanóleikari og tók Þórarinn Gíslason sæti hans (og lék reyndar einnig á saxófón) en fékk ekki leyfi sýslumanns til að leika á dansstöðum Ísafjarðarbæjar því hann var þá aðeins fjórtán ára gamall. Helga Helgadóttir kom því inn í sveitina og lék með sveitinni á píanóið allt til vorsins 1962 en Þórarinn kom þá aftur inn í sveitina enda orðinn gjaldgengur hvað aldurinn varðaði, Ólafur Kristjánsson kom þá einnig aftur í sveitina og lék nú á víbrafón..
Þessi útgáfa varð sú fyrsta af sveitinni sem hafði á að skipa föstum söngvara og að öðru leyti var hún sambærileg KK-sextett að stærð og skipan. Sveitin gekk nú gjarnan undir nafninu V.V. sextett og Barði, og þannig mönnuð lék hún til ársins 1964. Þá um vorið kom Samúel Einarsson bassaleikari inn í hljómsveitina í stað Magnúsar og um svipað leyti hætti sjálfur hljómsveitarstjórinn, og gekk þá sveitin um eins árs skeið undir nafninu Blossar og Barði en Villi Valli starfrækti hljómsveitina Sexmenn um sumarið – fjallað er um Sexmenn á öðrum stað á Glatkistunni.
Villi Valli kom aftur inn í sveitina (Blossa) líklega haustið 1965 og þá tók hún aftur upp V.V.-nafnið. Margt er þó á huldu varðandi sveitina þarna, Baldur Ólafsson gítarleikari (bróðir Barða söngvara) lék með Blossum en ekki liggur fyrir hvort hann lék einhverju sinni með hljómsveit Villa Valla. Þá er ógetið nokkurra meðlima í viðbót sem léku um tíma með sveitinni, Árni Ísleifsson píanóleikari lék með Villa Valla í einn vetur en engar upplýsingar er að finna um ártal í því samhengi, einnig mun trommuleikarinn Hallgrímur Sigurðsson hafa leikið með einhverri útgáfu sveitarinnar á einhverjum tímapunkti, þá gætu þeir bræður, Baldur og Karl Geirmundssynir ennfremur hafa leikið með henni. Upplýsingar þ.a.l. óskast sendar Glatkistunni sem og um fleiri sem kunna að hafa leikið með sveitinni – kjarni Blossa lék einnig í Sexmönnum árið 1967.

Villi, Gunnar og Haukur
Starfsemi hljómsveita Villa Valla var nú stopulli og einungis finnast upplýsingar um sveit undir hans stjórn 1967 og 69, Villi Valli var þá fremur upptekinn með Lúðrasveit Ísafjarðar sem hann stýrði um áratugar skeið.
Vilberg birtist með nýja sveit árið 1972 og var það oftast tríó sem lék blandaða danstónlist og þá einnig gömlu dansana, það tríó gekk iðulega undir nafninu Villi, Gunnar og Haukur en með honum í þeirri sveit voru að öllum líkindum Gunnar Hólm og Haukur Sigurðsson.
Tríó Villa starfaði í áratug, – frá 1972 til 82 og var sveitin til langs tíma húshljómsveit í Gúttó (Góðtemplarahúsinu) á Ísafirði. Villi, Gunnar og Haukur fóru í fræga ferð með Sunnukórnum á Ísafirði til Noregs sem meðleikarar á tónleikum en á leiðinni lék sveitin um borð í Gullfossi, sem hópurinn sigldi með. Tríóið breytti lítillega um svip þegar Baldur Ólafsson kom í stað Harðar árið 1977 og þannig var sveitin skipuð til ársins 1982 þegar hún hætti störfum. Barði Ólafsson söngvari söng stöku sinnum með tríóinu.

Villi Valli og félagar leika djass
Þrjú ár liðu uns Villi Valli birtist næst með hljómsveit, árið 1985 var hann með hljómsveit og síðan 1986 hefur hann eingöngu starfrækt djass- og harmonikkubönd (tengd starfi harmonikkufélaganna), sem hafa komið fram við ýmis tækifæri en langt því frá reglulega. Skipan þeirra sveita hafa verið með mismunandi hætti og eftir hæfi hverju sinni. Þeir Ólafur Kristjánsson, Baldur Geirmundsson, Magnús Reynir Guðmundsson og Gunnar Hólm hafa lengst af starfað með honum hin síðari ár. Einnig hefur Önundur Pálsson trommuleikari verið með þeim.
Hljómsveitir Villa Valla hafa leikið stopulla síðustu árin og þegar þetta er ritað er þó nokkuð liðið síðan sveit í hans nafni kom fram, það var líklega árið 2014 en hljómsveitarstjórinn var þá á áttugasta og fimmta aldursári.














































