Afmælisbörn 13. mars 2019

Axel Haraldsson

Fjögur afmælisbörn koma við sögu á Glatkistunni í dag:

(Þórir) Karl Geirmundsson gítarleikari frá Ísafirði á stórafmæli dagsins en hann er áttræður, hann lék í BG & Ingibjörgu með bróður sínum Baldri Geirmundssyni, en sú sveit gekk reyndar undir ýmsum nöfnum. Einnig lék Karl á sínum tíma með Hljómsveit Vilbergs Vilbergssonar (Villa Valla), Hljómsveit Björns R. Einarssonar og Lúdó & Stefáni svo nokkrar séu nefndar.

Baldur Baldvinsson, sem er annar Rangárbræðra (frá Rangá í Köldukinn) er sjötíu og eins árs gamall á þessum degi. Hann hefur gefið út plötu með Baldvini bróður sínum, sungið í karlakórunum Hreimi og Goða nyrðra auk þess að syngja á plötu Aðalsteins Ísfjörð.

Axel Haraldsson trommuleikari Hjaltalín er þrjátíu og tveggja ára gamall í dag. Hann hefur aukinheldur leikið með hljómsveitum eins og Reimum, Fallegum mönnum, Heiðurspiltum og Búdrýgindum, sem sigruðu Músíktilraunir árið 2002.

Jóhannes Vilhelm Guðmundsson Þorsteinsson (Jonni í Hamborg) hefði einnig átt afmæli þennan dag en hann var einn frumkvöðla í djasstónlist á Íslandi. Jonni (f. 1924) var píanóleikari sem hélt fyrstu djasstónleikana í Íslandssögunni í Gamla bíói 1946, aðeins þremur mánuðum síðar lést hann af slysförum í Danmörku.