
Högni Egilsson
Að þessu sinni eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Þorlákur (Hilmar) Kristinsson Morthens eða bara Tolli Morthens er sextíu og sex ára í dag. Allir þekkja listmálarann Tolla en margir muna líka eftir tónlistarferli hans, hann gaf út plötuna The boys from Chicago ásamt hljómsveitinni Ikarus árið 1983 en platan var einmitt lokaverkefni Tolla í listnáminu. Tolli hafði þá starfað með Gúanóbandinu auk þess að koma fram sem trúbador en hann hefur síðustu árin helgað sig myndlistinni eingöngu.
Sigurður Möller Sívertsen trommuleikari er þrítugur og á því stórafmæli á þessum degi. Sigurður er trymbill Grísalappalísu en gegndi einnig því hlutverki í Jakobínurínu og Dream central station. Hann hefur síðustu ár verið við kvikmyndagerðarnám erlendis, nú síðast í Bosníu Herzegóvínu.
Högni Egilsson tónlistarmaður einkum kenndur við hljómsveitina Hjaltalín er þrjátíu og fjögurra gamall á þessum deg. Auk þess að starfa með Hjaltalín hefur hann einnig komið við í hljómsveitum eins og Gus gus, Múm, Norton og Saab en hann vinnur að sólóplötu um þessar mundir. Högni hefur vakið athygli fyrir að ræða opinskátt um geðhvarfasýki en hann glímir við þann sjúkdóm.
Og að síðustu er hér nefndur Þorsteinn Magnússon (Stanya) gítarleikari en hann er sextíu og fjögurra ára. Þorsteinn hafði verið í nokkrum óþekktum hljómsveitum eins og Formúlu og Litla matjurtagarðinum þegar hann gekk til liðs við Eik en síðar var hann í sveitum eins og Deildarbungubræðrum, Faraldri, Frökkum, Næturgölunum frá Venus, Eik og Draumasveitinni. Hann hefur einnig sent frá sér sólóplötur og hefur leikið á plötum Bubba Morthens, Jóhanns G. Jóhannssonar og Herberts Guðmundssonar svo nokkur dæmi séu nefnd.