Styr
(Lag Jón Ólafsson / texti Daníel Ágúst Haraldsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson og Jón Ólafsson)
Tvö stingandi strá
titra í andvara örvænting
í andlitum mannanna.
Eftir styr einhver spyr,
hver vann hana?
Skálmöld skellur á
á svipstundu horfin er hámenning
í flóðbylgju syndanna.
Háð er stríð hverra líf
upp til himnanna.
Eftir styr einhver spyr,
ekkert svar…
Rústirnar sjá aðeins rautt, skynja
róstur í spilaborg allt hrynja
borgin sem blæðandi,
höfuðlaus her.
Þjóðir með mikinn mátt heyja
styrjöld með höfuð hátt deyja.
Logandi jörð, vanmáttug hjörð – börn.
[af plötunni Nýdönsk – Himnasending]














































