Fallegur dagur
(Lag og texti Bubbi Morthens)
Veit ekki hvað vakti mig,
vill liggja um stund.
Togar í mig tær birtan,
lýsir upp mína lund.
Þessi fallegi dagur,
þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.
Íslenskt sumar og sólin
syngja þér sitt lag.
Þú gengur glöð út í hitann,
inn í draumbláan dag.
Þessi fallegi dagur,
þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.
Mávahvítt ský dormar dofið,
inn í draum hringsins er það ofið.
Hreyfist vart úr stað.
Konurnar blómstra brosandi sælar,
sumarkjólar, háir hælar.
Kvöldið vill komast að.
Þessi fallegi dagur,
þessi fallegi dagur.
Aaa aaa aaa aaa.
[m.a. á plötunni Bubbi Morthens – Ást]














































