Erfitt er að finna heimildir um hljómsveit sem virðist hafa gengið undir nafninu Gull í mund, hugsanlega var ekki um starfandi hljómsveit að ræða heldur band sem sett var saman einungis til að leika lagið Þú lætur mig loga, flutt af Sigurði Höskuldssyni á safnplötunni Lagasafnið No. 5 – Anno 1996.
Með Sigurði (sem syngur og leikur á gítar) á þeirri safnplötu leika þeir Helgi E. Kristjánsson bassa- og gítarleikari og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari en í plötubæklingi stendur að hljómsveitin Gull í mund hafi annast útsetningu á laginu, ekki liggur þó fyrir hvort um sömu sveit sé að ræða og leikur það á plötunni.
Frekari upplýsingar óskast því um þessa hljómsveit.














































