Afmælisbörn 21. júlí 2020

Bryndís Jakobsdóttir

Í dag eru afmælisbörn íslensks tónlistarlífs fjögur talsins samkvæmt skrá Glatkistunnar:

Steinar Berg (Ísleifsson) er sextíu og átta ára. Steinar var lengstum hljómplötuútgefandi, starfrækti Steina í áratugi og síðar Steinsnar. Hann hefur einnig verið virkur tónlistarmaður hin síðari ár, leikið á gítar og sungið með hljómsveitum eins og Fírunum og Grasösnum, sem hefur gefið út tvær plötur, en hann var einnig í Liðssveitinni sem átti efni á safnplötunni Í kreppu, um miðjan áttunda áratug síðustu aldar.

Jón Rafn (Bjarnason) er fimmtíu og níu ára gamall í dag. Hann gaf út sólóplötuna Lög fyrir þig 1989 en hafði nokkrum árum fyrr gefið út smáskífu. Hann lék með fjölmörgum hljómsveitum á yngri árum í Hafnarfirði, síðar starfaði hann undir nafninu John Raven á tónlistarsviðinu.

Þorvaldur H. Gröndal er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Kanada, Orgelkvartettinn Apparat, Trabant (Traktor), Kvartett Ó. Jónsson & Grjóni, Call him mr. Kid, The Funerals, Púff og Motion boys eru meðal sveita sem hann hefur leikið með, ýmis á trommur, hljómborð eða bassa.

Yngst afmælisbarna dagsins er Bryndís Jakobsdóttir (Dísa) en hún er þrjátíu og þriggja ára gömul í dag. Dísa hefur stundum verið nefnd sem eina hreinræktaða Stuðmannabarnið en hún er dóttir Jakobs Frímanns og Röggu Gísla. Sólóplata Dísu samnefnd henni kom út 2008 og varð til upp úr samstarfi hennar og Moses Hightower, en hún hefur einnig gefið út plötu í samstarfi við Mads Mouritz.