Afmælisbörn 20. nóvember 2020

Helgi Hrafn Jónsson

Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar.

Það er tónlistarmaðurinn og tónskáldið Helgi Hrafn Jónsson en hann er fjörtíu og eins árs gamall. Helgi Hrafn kemur af Seltjarnarnesinu þar sem hann steig sínu fyrstu tónlistarspor með hljómsveitinni Bossanova og Lúðrasveit æskunnar en hefur einnig starfað með Aton og fleiri sveitum. Hann nam básúnuleik í Austurríki en spilar á miklu fleiri hljóðfæri og á að baki nokkrar sólóplötur, auk þess þess sem hann hefur leikið inn á fjölda platna með tónlistarmönnum eins og Mugison, Leaves, Hjaltalín, Sigur rós, Sing Fang, Valgeiri Sigurðsson, Amiinu og Sprengjuhöllinni. Hann hefur unnið til fjölda viðurkenninga fyrir tónlist sína.

Vissir þú að Guðjón Rúdolf (sem söng um húfuna) og Andrea Gylfa söngkona eiga saman soninn Bjart sem var í XXX Rottweiler um tíma?