
Sex show
Sönglagahópur sex unglingsstúlkna úr Ármúlaskóla gekk undir nafninu Sex show í byrjun árs 1974 og líklega hafði hópurinn þá verið starfandi um tíma.
Engar upplýsingar er að finna hverjar skipuðu þennan hóp en ein þeirra lék aukreitis undir á gítar, og fluttu þær einhvers konar þjóðlagatónlist. Þegar hópurinn kom fram á FÁLM-hátíð í Tónabæ hafði ein í viðbót bæst í hópinn og líklega hættu þær fljótlega eftir það – eða hugsanlega tóku upp nýtt nafn.