Nýtt lag frá Rolf Hausbentner band í samstarfi við Fríðu Dís

Baby It‘s Love er nýjasta lagið frá Rolf Hausbentner Band og er unnið í samstarfi við Fríðu Dís Guðmundsdóttur. Svalur rokkari um neistann sem blossar upp á milli tveggja einstaklinga, sem kom út á streymisveitum föstudaginn 12. nóvember 2021. Áður hafði sveitin sent frá sér lögin Let it fly og Set me free fyrr á þessu ári.

Rolf Hausbentner Band er hljómsveit sem stofnuð var árið 2020. Eftir áralangt hark á ölduhúsum og knæpum heimsins var sköpunargáfan beisluð og vinnur Rolf Hausbentner Band nú að upptökum á fyrstu plötu sinni sem er væntanleg árið 2022. Baby It’s Love er eitt af þeim lögum sem verða á þeirri plötu. 

Á Baby It’s Love syngja þau Fríða Dís og Hlynur Þór Valsson og um hljóðfæraleik sjá Rolf Hausbentner og gítarleikarinn BB Green ásamt trommuleikaranum Ólafi Ingólfssyni sem jafnframt var í hlutverki upptökumanns. Lagið var svo hljóðblandað af Inga Þór Ingibergssyni. 

Laginu hefur þeger verið dreift til útvarpsstöðva, en líka er hægt að hlusta á það hér:  https://open.spotify.com/track/1WBKp4YMVzTMRb3k4XSKeF?si=c5c043d76dd24197