Svalbarði [1] (1997-2000)

Hljómsveit starfaði á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir síðustu aldamót undir nafninu Svalbarði, um var að ræða einhvers konar rokksveit.

Svalbarði virðist hafa starfað að minnsta kosti á árunum 1997 til 2000 en hvenær nákvæmlega liggur ekki alveg fyrir, og lék sveitin í fáein skipti opinberlega á stöðum eins og Rósenberg, Kaffileikhúsinu og Gauki á Stöng – að því gefnu að um sömu sveit sé að ræða. Engar upplýsingar er að finna um meðlimi og hljóðfæraskipan þessarar sveitar utan þess að Kristín Jónsdóttir (Unun, Múldýrið o.fl.) síðar eldfjalla- og jarðskjálftafræðingur mun hafa verið söngkona hennar, framan af var Svalbarði fjögurra manna sveit en hér er óskað eftir upplýsingum um aðra meðlimi hennar og annað sem ætti heima í slíkri umfjöllun.