
Svartar sálir
Upplýsingar óskast um hljómsveitina Svartar sálir sem starfaði á Höfn í Hornafirði, annars vegar sem unglingahljómsveit á áttunda áratugnum (á að giska) og hins vegar í kringum 2010.
Fáar heimildir er að finna um Svartar sálir frá fyrra starfsskeiði hennar utan þess að meðlimir hennar voru þeir Gunnlaugur Sigurðsson gítarleikari, Páll Emil Beck gítarleikari, Vigfús Svavarsson bassaleikari, Jón Malmquist Guðmundsson trommuleikari og Emil Þorsteinsson söngvari [?].
Sveitin virðist síðan hafa verið endurreist eftir langt hlé (hversu langt liggur þó ekki fyrir) og var hún þá starfandi á árunum 2010 til 2012 að minnsta kosti, jafnvel lengur. Sveitin var á því tímaskeiði að einhverju leyti skipuð sömu meðlimum, þ.e. Gulla, Milla, Jóni og Vigfúsi að minnsta kosti en einnig söngkonunni Sigríði Sif Sævarsdóttu og hugsanlega var yngri systir hennar, Þórdís Sævarsdóttir einnig í sveitinni. Þannig skipuð lék sveitin m.a. á humar- og blúshátíðum á Höfn.
Allar frekari upplýsingar um Svartar sálir, frá hvaða tímaskeiði sem þær eru, eru vel þegnar.














































