
Magnús Baldvinsson
Í dag er einn tónlistarmaður á lista yfir afmælisbörn dagsins:
Magnús Baldvinsson söngvari er sextíu og fimm ára gamall á þessum degi. Hann hefur mestmegnis alið manninn erlendis, einkum í Evrópu hin síðari ár en áður í Bandaríkjunum þar sem hann hafði verið við framhaldsnám í söng. Magnús, sem er bassi sendi árið 1992 frá sér plötuna Nú tindra stjörnur: úr söngbók séra Friðriks.
Vissir þú að SATT (Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna) gaf út þrjár safnplötur árið 1984 til að gefa minni spámönnum færi á að koma tónlist sinni á framfæri?